Karfan er tóm.
Ákjósanlegt framboð næringarefna er sérstaklega mikilvægt á uppvaxtartímanum eða á meðgöngu og á meðan ungviðið er á spena. JOSERA Kitten þurrfóðrið er hannað fyrir þetta tímabil lífsins og hefur mikla orku, er auðvelt í meltingu og sérstaklega bragðgott.
- Hentar vel til fóðrunar katta fyrsta aldursárið sem og fyrir kettlingafullar og mjólkandi læður
- Með mikla orku og prótein sem og verðmæta laxaolíu fyrir sérstakar kröfur á mikilvægustu stigum lífsins
- Auðveld melting
- Með fæðutrefjum sem geta unnið gegn myndun hárbolta
Fyrir kettlingafullar læður: Athugið að þörfin fyrir mat á meðgöngu fer eftir fjölda kettlinga. Forðast ætti offóðrun kattarins með hliðsjón af
fæðingarerfiðleikum og truflunum meðan að læðan er með kettlingana á spena.
Hjá mjólkandi læðum: Fóðrið skal vera til staðar eftir þörfum þar sem fóðurþörfin fer eftir fjölda kettlinga og mjólkurframleiðslu.